Sumir sjúklingar hafa sjúkdóma sem geta aukið áhættu við skurðaðgerð, til dæmis hjarta- og lungnasjúkdóma. Aldur og almennt líkamlegt ástand skipta einnig máli. Helsta rannsókn á lungum fyrir aðgerð er öndunarmæling, enda er algengt að sjúklingar hafi langa sögu um reykingar og séu með skerta lungnastarfsemi. Við öndunarmælingu er sjúklingurinn látinn blása í tæki sem mælir rúmmál lungnanna og starfsgetu þeirra. Aðrar mikilvægar rannsóknir eru hjartalínurit, ýmsar blóðrannsóknir og myndrannsóknir. Í völdum tilvikum er gert loftdreifpróf (DLCO) og áreynslupróf með mælingu á hámarks súrefnisupptöku, sem er góð rannsókn til þess að spá fyrir um áhættu við aðgerð.
Sjúklingar og aðstandendur
Eldri færslur
Lungnakrabbameinsbókin kemur út
Á vormánuðum 2009 kom út kver um lungnakrabbamein gefið út af læknum sem sinntu...
Lesa meira
Fræðslumynd um reykingar og lungnasjúkdóma
Fræðslumyndin „Manni sjálfum að kenna“ var frumsýnd 30. maí á RÚV. Í þessari nýju...
Lesa meira
Orsakir lungnakrabbameins og þættir sem auka áhættu
Reykingar eru langalgengasta orsök lungnakrabbameins og eru taldar valda um 90% tilfella. Langflestir sem...
Lesa meira