Við greiningu nýrnafrumukrabbameins eru tæplega 20% sjúklinga með lungna- meinvörp. Lífshorfur þessara sjúklinga eru slæmar og aðeins tíundi hver sjúklingur með meinvörp er á lífi fimm árum eftir greiningu. Nýlegar erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á umtalsvert betri lífshorfur hjá völdum hópi sjúklinga sem hefur gengist undir brottnám á lungnameinvarpi nýrnafrumukrabbameins (30-49% sjúkdómsfríar fimm ára lífshorfur). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna umfang þessara aðgerða hér á landi og afdrif sjúklinga.
Nemar
Eldri færslur
Hvað er lungnakrabbamein?
Lungnakrabbamein er upprunnið í frumum lungna. Krabbamein sem myndast annars staðar í líkamanum geta...
Lesa meira
Reykingar og mikilvægi þess að hætta að reykja
Í dag reykja tæplega 18% fullorðinna Íslendinga, sem er lægra hlutfall en í flestum...
Lesa meira
Lungnakrabbameinsbókin kemur út
Á vormánuðum 2009 kom út kver um lungnakrabbamein gefið út af læknum sem sinntu...
Lesa meira